Krufning á líki söngvarans George Michael var „ófullnægjandi“ samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Bretlandi en ekki hefur tekist að upplýsa hvað olli því að Michael lét lífið að kvöldi jóladags.
Söngvarinn varð 53 ára gamall en hann fannst „liggjandi friðsamlega uppi í rúmi.“
Samkvæmt yfirlýsingu frá lögreglu verða frekari rannsóknir gerðar þar sem reynt verður að komast að því hvað varð þess valdandi að Michael lést. Talið er að niðurstöður liggi fyrir eftir nokkrar vikur.
Ekki er talið að nokkuð saknæmt hafi gerst en umboðsmaðurinn Michael, Michael Lippman, segir að hann hafi látist af völdum hjartabilunar.