Yfirgnæfandi líkur eru taldar á því að Debbie Reynolds og Carrie Fisher verði jarðaðar saman samkvæmt heimildum bandaríska miðilsins TMZ.
Reynolds var langt komin með undirbúning á útför Fisher þegar hún féll sjálf frá. Nú vill meirihluti fjölskyldunnar að þær verði jarðaðar í sameiginlegri athöfn og jarðsettar hlið við hlið.
Búist er við að um fámenna og látlausa athöfn verði að ræða, fjarri kastljósi fjölmiðla. Í kjölfarið verði síðan haldin stærri minningarathöfn.