Íranski leikstjórinn Asghar Farhadi hefur gagnrýnt tilskipun Donald Trump til að banna fólki frá sjö löndum til að koma til Bandaríkjanna. Kvikmynd Farhadi, The Salesman, vann í nótt Óskarsverðlaun sem besta myndin á erlendu tungumáli.
Farhadi mætti ekki á verðlaunahátíðina en óvíst er hvort hann hefði komist til Bandaríkjanna vegna tilskipunar Trump. „Það skapar ótta að skipta heiminum upp í Bandaríkin gegn óvinum sínum,“ kom fram í yfirlýsingu frá Farhadi í tengslum við verðlaunin.
Anousheh Ansari tók á móti verðlaununum og las yfirlýsingu Farhadi. „Fjarvera mín er virðingarvottur við fólk frá mínu landi og þá frá hinum löndunum sex sem hafa verið vanvirtir vegna þessa ómannúðlegu laga sem banna innflytjendum að koma til Bandaríkjanna,“ kom fram í yfirlýsingunni.
„Leikstjórar geta reynt að sýna mannlegt eðli fólks frá mörgum löndum og fólks sem hefur ólíkar trúarskoðanir. Þeir skapa samkennd milli okkar og annarra. Við þurfum meira á þessari samkennd að halda nú en áður.“