Fadi Fawaz, kærasti George Michael, fær ekki að vita neitt um undirbúning jarðarfarar George Michael.
Söngvarinn sem lést í desember síðastliðinn hefur ekki enn verið jarðaður en fjölskylda Michaels hefur haldið öllu sem tengist jarðarförinni leyndu fyrir Fawaz. Samkvæmt The Sun þolir fjölskylda Michaels Fawes ekki og hann á ekki að fá að mæta í jarðarförina.
Fawez sem er ljósmyndari og hárgreiðslumaður kynntist George Michael árið 2009 og var með honum þangað til að hann dó.