Mikið hefur verið skrifað um óhamingju Melaniu Trump og nýlegt atvik verður ekki til þess að kveða þær sögur niður, en forsetafrúin sást slá til Donalds Trump í opinberri heimsókn forsetans til Ísrael.
Hjónin stigu glæsileg út úr einkaflugvél forsetans í Tel Aviv þar sem forsætisráðherra Ísraela, Benjamin Netanyahu, og eiginkona hans, Sara, tóku á móti þeim. Gengu allir hlið við hlið að flugstöðvarbyggingunni nema Melania Trump sem hélt sig einu skrefi fyrir aftan þremenningana.
Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan teygði Donald Trump sig til Melaniu en forsetafrúin var ekki á þeim buxunum að láta leiða sig svo hún sló til hans.