Dýrasti hamborgari í heimi á 240 þúsund

Hamborgarinn kostar 240 þúsund, það er bara vonandi að hann …
Hamborgarinn kostar 240 þúsund, það er bara vonandi að hann smakkist vel. skjáskot/Mirror

Hinn hollenski Diego Buik er einstakur hamborgaragerðarmaður sem setti sér það markmið að búa til dýrasta hamborgara í heimi í tilefni alþjóðlega hamborgaradagsins 28. maí síðastliðinn. Honum tókst það og er nú kominn í heimsmetabók Guinness.

Samkvæmt Mirror kostar hamborgarinn sem Buik gerði um 240 þúsund íslenskra króna og ekki af ástæðulausu. Hamborgarinn samanstendur meðal annars af japönsku nautakjöti, humri, foie gras, remeker osti, japönsku tómötum, kavíar, frönsku salati, hráskinku. Sósan er búin til úr 35 humrum, kaffi frá Jamaíka, vanillu frá Madagaskar, saffran og japanskri soja sósu. Öllu þessi er vel komið fyrir í saffran brioche brauði þakið gull laufum. 

Diego Buik vinnur á South of Houston veitingastaðnum í Haag, en ástríða hans á hamborgurum kviknaði þegar hann vann í tvö ár á SoHo House í London. Eftir að hann flutti aftur heim til Hollands árið 2015 byrjaði hann að gera sína eigin hamborgara. 

Diego Buik á heiðurinn af dýrasta hamborgara í heimi.
Diego Buik á heiðurinn af dýrasta hamborgara í heimi. skjáskot/Mirror
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þær eru ófáar gáturnar sem þú færð leyst með því að nálgast verkefnin opnum huga. Mættu hlutunum með bros á vör og leystu þá ljúfmannlega.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar