Dómari hefur ómerkt réttarhald í máli bandaríska leikarans Bill Cosby eftir að kviðdómendur náðu ekki að komast að sameiginlegri niðurstöðu í máli Cosby sem er sakaður um kynferðisbrot. Kviðdæmendurnir hafa frá því á mánudag reynt að komast að niðurstöðu án árangurs og segja að pattstaða ríki.
Sjö karlar og fimm konur eiga sæti í kviðdómnum. Fram kemur á vef BBC, að þau hafi rætt málið fram og til baka í rúmar 50 klukkustundir.
Cosby, sem er 79 ára gamall, er sakaður um að hafa byrlað Andreu Constand ólyfjan árið 2004 og brotið gegn henni kynferðislega. Verjendur leikarans halda því hins vegar fram að þau hafi stundað samfarir með samþykki beggja aðila.
Ákvörðun dómarans þýðir líklega að ný réttarhöld þurfi að fara fram í máli Cosby.