Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson og eiginkona hans Rósa Björk Sveinsdóttir mættu á frumsýningu leiksýningarinnar Með fulla vasa af grjóti í gær. Sýningin á sérstakan stað í hjörtum þeirra enda fóru þau á sitt fyrsta stefnumót á sýninguna 4. janúar 2002.
Sýningin var fyrst frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í árslok árið 2000 og fóru þá líkt og nú þeir Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson með aðalhlutverkin. Hjónin gátu því nánast endurskapað stefnumótið rúmum 15 árum síðar nema hvað í þetta skipti voru tvö af þremur börnum þeirra mætt með á stefnumótinu.