Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner er jafn þekkt fyrir varir sínar eins og stóra systir hennar, Kim Kardashian, fyrir afturendann á sér. Jenner segist hafa látið sprauta í varirnar á sér eftir að strákur gerði athugasemd við þær.
Þegar Jenner var 15 ára gömul og óörugg með litlu varirnar sínar sagði strákur við hana að hún væri léleg í því að kyssa af því að hún væri með litlar varir.
„Ég veit ekki, þetta hafði mikil áhrif á mig. Mér fannst ég ekki girnileg eða sæt. Ég vildi mjög mikið stærri varir,“ segir Jenner sem reyndi að mála varirnar þannig að þær virtust stærri en að lokum lét hún laga þær.
Raunveruleikastjarnan græðir nú heldur betur á þykku vörunum en hún er með sína eigin varalínu, Kylie Lip Kit, sem er geysivinsæl.