Ástæðan fyrir því að söngkonan Selena Gomez lét lítið fyrir sér fara í sumar var vegna þess að hún þurfti að fara í nýrnaígræðslu.
Gomez greindi frá þessu á Instagram-síðu sinni þar sem hún birti mynd af sér og Franciu Raisa vinkonu sinni en Raisa gaf henni nýtt nýra.
Gomez glímir við sjúkdóm í stoðvef og er það ástæðan fyrir því að hún þurfti nýtt nýra. Gomez tók sér nýlega hlé frá tónlistarferlinum en hún segir í viðtali við Billboard að ástæðan hafi verið sú að hún var í lyfjameðferð. „Ég lokaði mig af þangað til ég fékk sjálfstraust og leið aftur vel,“ sagði Gomez um pásuna.