Tónlistamaðurinn Marilyn Manson er ósáttur við framferði kollega síns Justins Biebers eftir að sá síðarnefndi hóf að selja boli skreytta andliti Mansons.
Manson segir Bieber hafa gert lítið úr sér með því að halda því fram að hann væri að koma Manson aftur inn á kortið eftir hlé frá sviðsljósinu. „Hann hegðaði sér eins og algjör skíthæll,“ er haft eftir Manson
Bolirnir sem um ræðir voru seldir ásamt varningi frá tónleikaferðalagi Biebers í versluninni Barney's. Þrátt fyrir ummæli Mansons segir hönnuður bolanna að Manson hafi samþykkt sölu þeirra.
Manson segir að Bieber og hans fylgdarlið hafi að lokum sæst á að hann fengi sölutekjur af bolunum. „Þeir mótmæltu því ekki einu sinni,“ sagði Manson.
A post shared by jerrylorenzo (@jerrylorenzo) on Jul 19, 2016 at 12:46pm PDT