Gylfi Már Hrafnsson og María Tinna Hauksdóttir úr dansdeild HK sýndu frábæra takta á Evrópubikarmóti WDC sem fram fór í Radom, Póllandi, um síðastliðna helgi.
Parið, sem keppti í flokki unglinga, gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði í ballroom-keppninni og 10 dansa keppninni, auk þess sem þau höfnuðu í öðru sæti í latin-keppninni.
Parið stóð sig frábærlega, enda um sterkt mót að ræða.