Óreiðumenningin

„Hvað getur leikhúsið gert? Alltaf er það nú lykilspurningin í …
„Hvað getur leikhúsið gert? Alltaf er það nú lykilspurningin í verkum Þorleifs og Mikaels Torfasonar, að minnsta kosti jafnfætis hverju því efni sem vinna skal úr og miðla. Hvernig nýtast möguleikar formsins, tækni leiksviðsins og aðferðir sviðslistamanna við rannsókn og framsetningu efnisins? Við því fæst auðvitað ekki endanlegt svar núna, frekar en endranær,“ segir í leikdómi um Guð blessi Ísland. Ljósmynd/Grímur Bjarnason

„Guð blessi Ísland er kraftmikil sýning, stundum fyndin, sjaldnast hugvekjandi, fimlega leikin, útfærð og hönnuð á öllum póstum. Íburðarmikil revía sem minnir okkur á nokkur mikilsverð atriði varðandi þennan þáttaskilaatburð í Íslandssögunni, en það er lítið um nýja eða spennandi vinkla. Spurningunni um hvað leikhúsformið hefur til málanna að leggja er enn ósvarað, en atlögur Þorleifs, Mikaels og félaga þeirra að svari halda áfram að vera áhugaverðar,“ skrifar Þorgeir Tryggvason í leikdómi sínum um Guð blessi Ísland í Borgarleikhúsinu sem lesa má í heild sinni í Morgunblaðinu í dag. 

„Eins og gjarnan á sýningum Þorleifs Arnar Arnarssonar er eitt lykilaugnablik hennar utan hefðbundins sýningartíma. Í hléi rúlla fréttamyndir frá hrundögum, í kringum fall Glitnis, og rétt áður en leikarar hefjast handa á ný er þar talað við Þorstein Má Baldvinsson, stjórnarformann bankans. Hann er harla óhress með að vera búinn að missa bankann sinn og jafnvel harðmæltari en hversdags og þegar hann er spurður hvort hann sjái einhverja sök hjá bankanum, eitthvað í framferði og stefnu sem hefði átt þátt í því hvernig fór, fer hann með hina klassísku trúarjátningu valdakalla með allt niðrum sig: að það sé óþörf og fráleit tíma- og orkusóun að horfa til baka. Auðvitað gerir hann það. Af þeirri heiðbjörtu, manni liggur við að segja helbláu, sannfæringu sem leikari í absúrdleikriti þarf alltaf að leggja í replikkurnar sínar,“ skrifar Þorgeir og bendir á að þó hrunið hafi bæði verið rætt í kaf og krufið til mergjar sjái enn ekki fyrir endann á því verkefni.

„Hvað getur leikhúsið gert? Alltaf er það nú lykilspurningin í verkum Þorleifs og Mikaels Torfasonar, að minnsta kosti jafnfætis hverju því efni sem vinna skal úr og miðla. Hvernig nýtast möguleikar formsins, tækni leiksviðsins og aðferðir sviðslistamanna við rannsókn og framsetningu efnisins? Við því fæst auðvitað ekki endanlegt svar núna, frekar en endranær. Atriðin í þessari revíuformuðu sýningu hitta sum í mark, önnur síður. Eitt hittir þennan áhorfanda en segir sessunaut hans ekki neitt. Svo kemur nýtt. Einn hlær hér, annar þar. Þetta er Skaupið. Er þetta fyndnara eða beittara en skaupin eftir hrun? Eiginlega ekki. En dýpra? Sannara? Ég er ekki heldur viss um það.

„Í heildina er sjónarhorn sýningarinnar merkilega þröngt. Hér er lítið …
„Í heildina er sjónarhorn sýningarinnar merkilega þröngt. Hér er lítið sem ekkert grúskað í aðdragandanum; hinum sögulegu, hagfræðilegu eða sálrænu djúprótum hrunsins,“ segir í leikdómi um Guð blessi Ísland. Ljósmynd/Grímur Bjarnason

Ég veit ekki heldur hvort það er ósanngjörn nýjabrumsgræðgi í mér að finnast sumt af aðferðunum og nálguninni sem naut sín svo vel í Njálu og Álfahöllinni ekki vinna af nægjanlegum krafti fyrir kaupinu sínu hér. Kitsuðu skrautbúningarnir hennar Sunnevu Ásu Weisshappel til dæmis. Og það hvernig leikararnir sjálfir birtast okkur meðfram persónunum sínum. Áreitisofgnótt sem stundum hellist yfir í umgjörð, leikmunum, tónlist, myndböndum og lýsingu. Og ekki síst sú gegnumgangandi afstaða að helst þurfi allt að orka tvímælis. Allt þurfi að hverfast í kaldhæðni, speglast í afstöðu leikendanna, haldast opið á einhvern hátt. Dæmi um þetta í Guð blessi Ísland er hvernig móðursýkisleg og ýkt túlkuð reiðiköst ómerkja sjálfshjálparræðu Björgúlfs Thors (eins og þess væri nú þörf). Annað er þegar Ingibjörg Kristjánsdóttir flytur sína klisjulegu fjallgöngupredikun en missir sig aftur og aftur í bræðiköst yfir hlutskipti eiginmannsins, Ólafs Kvíabryggjufanga,“ skrifar Þorgeir og fjallar í framhaldinu um skemmtilegastu hugmynd verksins og versta atriðið, en leikdóminn í heild sinni má lesa í Morgunblaðinu í dag. 

„Í heildina er sjónarhorn sýningarinnar merkilega þröngt. Hér er lítið sem ekkert grúskað í aðdragandanum; hinum sögulegu, hagfræðilegu eða sálrænu djúprótum hrunsins. Kannski eins gott, því mikið skelfilega er vandræðalegt að sjá montnu Kaupthinking-auglýsinguna og að þurfa enn og aftur að sitja undir eðlishyggjuþvælunni úr Ólafi Ragnari og Borgarnesræðu Ingibjargar Sólrúnar. Að öðru leyti erum við að mestu stödd síðustu sólarhringana í aðdraganda yfirtöku Glitnis og síðan í áfallastreitu og eftirmálunum eins og þau horfa við helstu leikmönnum. Útrásarvíkingum og svo manninum sem mætir á svæðið með goðsagnakenndum stæl undir eigin þematónlist snemma leiks.

Það er einhvern veginn allt í senn: óþolandi, óhjákvæmilegt og stórkostlegt að Davíð Oddsson skuli yfirtaka þessa sýningu eins og hann tók yfir banka óreiðumannanna. Það segir sig sjálft að það var óhjákvæmilegt. Stórkostlegt er það vegna þess hvernig bæði handritshöfundur og leikkona fara á kostum í að vinna úr efniviðnum. Óþolandi vegna þess að þrátt fyrir allt plássið sem hann tekur þá eru varla nokkur spurningarmerki sett við nokkuð sem hann segir eða gerir, alla vega ekki af neinum marktækum persónum; hér hafa allir eigið skinn að verja. Það fellur utan verkefnis sýningarinnar – Guð blessi Ísland er ekki um einkavæðingu, nýfrjálshyggju, reiðareksstefnu í eftirlitsmálum eða Eimreiðarhópinn – og svo er þetta jú hann Davíð og við vitum hvernig hann er.

Og hvílíkur Davíð! Hvernig Brynhildur Guðjónsdóttir nær í alveg hæfilega mikið af kækjum og einkennum þessa auðþekkta manns, hvernig Mikael Torfason hefur augljóslega notið þess að nostra við málsniðið, hvernig Brynhildur hefur öll völd á sviðinu þegar hún kærir sig um, dyggilega studd auðvitað af leikhópnum. Hvernig allt sem hún segir er alltaf svo augljóslega það eina rétta. Og síðast en ekki síst, þegar Davíð lætur svo lítið að ræða við leikarana sjálfa. Þar sést þó að það er enn bensín á þeirri brellu að færa til skilin milli leiks og „raunveruleiks“,“ segir m.a. í leikdómnum um Guð blessi Ísland. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Valdabarátta við vin gæti fengið þig til að breyta markmiðum þínum eða framtíðaráformum lítilsháttar. Komdu hugmyndum þínum á framfæri.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Loka