Downton Abbey-stjarnan Michelle Dockery lék ekki bara ekkju í bresku dramaþáttunum heldur missti hún sjálf unnusta sinn úr krabbameini í desember árið 2015. Hún lítur á sjálfa sig sem ekkju.
Dockery hafði verið trúlofuð almannatengslastjórnandanum John Dineen í ár þegar hann dó úr krabbameini fyrir tæpum tveimur árum aðeins 34 ára. Í viðtali við The Guardian brotnaði hún saman áður en hún gat sagt frá því að hún hafði aldrei verið jafnskuldbundin neinum í lífi sínu eins og unnusta sínum.
Dockery segist aldrei hafa misst vonina þrátt fyrir að batahorfurnar hafi ekki verið góðar. „Ég er ekki að ýkja þegar ég segi að John hafi aldrei kvartað, aldrei, ekki einu sinni og það gaf okkur styrk,“ sagði Dockery sem hélt veikindum unnustans leyndum.
Leikkonan segist líta á sjálfa sig sem ekkju. „Við vorum trúlofuð og gift innst inni svo ég tel mig vera ekkju,“ sagði hún.