Hreingerningadrottningin Sólrún Diego ýtir Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur úr toppsætinu á metsölulista vikunnar. Bókin Heima eftir Sólrúnu trónir á toppnum.
Bókin Heima kom út á dögunum en í bókinni fer Sólrún yfir helstu atriði sem snýr að heimilisþrifum. Hún heldur úti vinsælum Snapchat-reikningi þar sem heimilisþrif eru í lykilhlutverki.
Metsölulistinn er gefinn út af Félagi íslenskra bókaútgefanda:
1. Heima – Sólrún Diego
2. Gatið – Yrsa Sigurðardóttir
3. Myrkrið veit – Arnaldur Indriðason
4. Amma best – Gunnar Helgason
5. Mistur – Ragnar Jónasson
6. Þitt eigið ævintýri – Ævar Þór Benediktsson
7. Saga Ástu – Jón Kalman Stefánsson
8. Sakramentið – Ólafur Jóhann Ólafsson
9. Útkall, Reiðarslag í Eyjum – Óttar Sveinsson
10. Minn tími – saga Jóhönnu Sigurðardóttur – Páll Valsson