Söngkonan Bonnie Tyler kemur fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í lok júní. Lögin Total Eclipse of the Heart og Holdin Out for a Hero munu því eflaust hljóma um Laugardalinn í sumar.
Breskir tónlistarmenn og bandarískir tónlistarmenn verða áberandi á hátíðinni ár en sjá má hverjir koma fram á heimasíðu Secret Solstice.
Íslenskir tónlistarmenn verða líka í aðalhlutverki og mun hljómsveitin Jet Black Jo koma saman og spila. Högni, Hildur, JóiPé og Króli og Agent Fresco eru síðan meðal þeirra sem koma fram.