Ísland í aðalhlutverki hjá Samsung

Pétur Jónsson er í stóru hlutverki í nýrri markaðsherferð Suður …
Pétur Jónsson er í stóru hlutverki í nýrri markaðsherferð Suður Kóreyska tæknirisans Samsung. Ljósmynd/Skjáskot

Íslensk náttúra og menning eru í stórum hlutverkum í kynningu á nýjum Samsung S9 síma. Tónskáldið Pétur Jónsson var fenginn til að gera útgáfu á einkennandi hringitón Samsung og íslensk náttúra er í aðalhlutverki í myndbandi við lagið. Útgáfa Péturs verður í símunum þegar þeir koma á markað.

„Samsung voru að leita af kvikmyndaskotinni útgáfu af laginu, og leituðu því á meðal kvikmyndatónlistarmanna á Íslandi, því að ísland var líka mikilvægur hluti af verkefninu, þar sem hróður tónlistarinnar okkar fer víða, og ég naut góðs af því,“ segir Pétur í samtali við mbl.is.

Over the Horizon hefur verið einn mest notaði hringitónn heims frá því að S-Kóreyski tæknirisinn setti hann fyrst í símana árið 2011. Pétur segir verkefnið hafa verið afar umfangsmikið. „Ferlið tók marga mánuði, og var flókið, því að markaðssetning af þessu tagi þarf að fara í gegnum flókin samþykktarferli hjá svona stórfyrirtækjum,“ segir Pétur.

Myndbandið má sjá hér að neðan en íslenskt landslag er þar í stóru hlutverki.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir