Sigga Beinteins er ein af þeim sem horfði á eignir sínar brenna inni í dag er húsnæði Geymslna í Miðhrauni í Garðabæ brann. Í Magasíninu hjá Hvata og Huldu fengu hlustendur að heyra af raunum dagsins. Karakterinn Masi, sem var einn leikenda í Söngvaborg, var einn af þeim hlutum sem brunnu inni.
Undanfarin átta ár hefur Sigga haldið árlega jólatónleika og þar af nokkur ár í Hörpu, sem kallar á mikla sviðsmynd og leikmuni fyrir svo stórt svið. Sem dæmi nefnir hún 40 jólatré í öllum stærðum, jólaseríur, 5.000 jólakúlur í ólíkum litum og gervisnjó að andvirði tvær milljónir króna. Einnig nefnir hún hreindýr og búninga og annars konar skraut sem sett er inn í sviðsmyndina.
Sigga segir ljóst á þessu stigi að allt tjónið verði ekki bætt en nú sé hún að skoða hversu mikið, ef eitthvað, heimilistryggingin dekki. „Maður fékk alveg tár í augun,“ segir hún er hún lýsir líðan sinni í dag er hún fylgdist með. Hún segist þó hafa minnt sig á það um leið að enginn hafi látist eða slasast alvarlega og það sé það sem skipti öllu máli. Hún segir þetta engu að síður hafa áhrif, enda tilfinningalegt tjón því þarna séu hlutir sem hún hafi sankað að sér í gegnum tíðina enda kosti tónleikahaldið mikið, oft margar milljónir.
Hún segir næsta skref að taka saman hlutina sem voru þarna inni „en sem betur fer þá eigum við það að megninu til skráð,“ segir Sigga sem þakkar fyrir það skipulag á þessum tímapunkti.
Annars er Sigga á fullu og lofar jólatónleikum þrátt fyrir áfall dagsins. „Ég get enn sungið,“ segir Sigga á sinn einstaklega létta og skemmtilega máta og bætir því við að þetta ár verði nýtt vel í að halda upp á 30 ára afmæli Stjórnarinnar.