Smallville-leikkonan Allison Mack reyndi að kynna Emmu Watson fyrir mansalshring sem dulbúinn var sem sjálfshjálparhópur. Business Insider birti gamlar Twitter-færslur sem sýna að Mack reyndi að ná athygli Harry Potter-stjörnunnar.
Mack kom fyrir dóm á dögunum vegna ákæru um aðkomu hennar að mansalshring sem var dulbúinn sem eins konar sjálfshjálparhópur. Var hún ákærð fyrir að hafa aðstoða leiðtoga hins svokallaða sjálfshjálparhóps við nýliðun í hópnum. Samfélagið, sem kallast Nxivm, átti að valdefla og styrkja þær konur sem gengu í það.
Mack reyndi að nálgast Watson þrisvar sinnum í byrjun árs 2016 í gegnum Twitter þar sem hún lýsir yfir áhuga sínum á að ræða við hana um kvennahreyfingu sem hún telur að Watson hafi áhuga á. Mack reyndi einnig að nálgast sönkonuna Kelly Clarkson en talaði ekki jafn skýrt um kvenahreyfinguna líkt og þegar hún reyndi að hafa samband við Watson.
.@EmWatson I'm a fellow actress like yourself & involved in an amazing women's movement I think you'd dig. I'd love to chat if you're open.
— Allison Mack (@allisonmack) January 24, 2016