Um 5.000 miðar seldust upp á tveimur klukkustundum í sérstakri forsölu á tónleika bandarísku rokksveitarinar Guns N' Roses sem haldnir verða á Laugardalsvelli 24. júlí.
Forsalan var fyrir áskrifendur að póstlista Solstice Productions, segir í fréttatilkynningu og var hún opnuð í dag. Almenn miðasala hefst á vefnum show.is 1. maí.