Edda Sif Pálsdóttir, stigakynnir Íslands á úrslitakvöldi Eurovision, verður tuttugasta í röðinni þegar stigin verða lesin upp í kvöld. Þar sem Ari Ólafsson verður ekki meðal keppenda á úrslitakvöldinu leggjum við Íslendingar allt okkar traust á Eddu Sif og ekki er við öðru að búast en að hún muni standa sig með prýði.
Edda Sif er íþróttafréttamaður og dagskrárgerðarmaður á RÚV. Hún er einnig umsjónarmaður í Landanum og Skólahreysti og er hluti af undirbúningsteymi fyrir umfjöllun RÚV um HM í knattspyrnu í sumar.
26 lönd taka þátt í úrslitakvöldi Eurovision en öll þátttökulöndin 43 taka þátt í stigagjöfinni. Úkraínumenn verða fyrstir til að tilkynna stigin og gestgjafarnir frá Portúgal síðastir.
Þegar litið er yfir listann yfir stigakynna kvöldsins er sjónvarpsfólk afar áberandi, eða 21 talsins. Þá munu tíu fyrrverandi Eurovision-farar kynna stigin fyrir hönd sinna landa, þar á meðal Aleksander Walmann sem hafnaði í 10. sæti í keppninni í fyrra með framlag Noregs, Grab the moment.