Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran birti mynd af sér í íslenska landsliðsbúningnum á þriðjudaginn þegar leikur Íslands og Króatíu fór fram á HM í knattspyrnu. Sheeran virðist halda mikið upp á búninginn og í gær, miðvikudag, var hann í bláu treyjunni í glerfínni góðgerðarveislu Eltons Johns.
Kostaði inn í veisluna en hún haldin í tilefni að alnæmisstofnun Eltons John er 25 ára. Ed Sheeran tók lagið í veislunni og hlustuð meðal annars þær Victoria Beckham, Nicole Scherzinger og Liz Hurley á Sheeran syngja í íslenska landsliðsbúningnum.
Sheeran lét einnig mynda sig í kjöltu Elton John í búningnum og leit ekki út fyrir annað en hann væri stoltur stuðningsmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu þrátt fyrir að Ísland hafi ekki komist upp úr riðlinum.
A post shared by etalk (@etalkctv) on Jun 27, 2018 at 7:53pm PDT