Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson fer með hlutverk í nýrri mynd á Netflix samkvæmt DV. Jennifer Aniston og Adam Sandler munu fara með aðalhlutverk í kvikmyndinni sem ber heitið Murder Mystery. Tökur hófust á myndinni þann 14. júní síðastliðinn í Montreal í Kanada. Myndin fjallar um par sem fer í frí til Evrópu og á undarlegan hátt flækist í morðmáli.
Ólafur Darri staðfesti þetta í viðtali við DV og sagði að hann muni allavega leika í myndinni og svo þurfi bara að bíða og sjá hvort hann verði klipptur út. Hann hefur verið að gera það gott vestanhafs en honum mun bregða fyrir í hárkarlamyndinni The Meg sem kemur út í haust. Ólafur gerði einnig nýverið samning við hrollvekjuþættina NOS4A2 sem bandaríska sjónvarpsstöðin AMC framleiðir. Þættirnir NOS4A2 eru byggðir á samnefndri bók Joe Hill, en Jami O'Brien skrifar handritið að þáttunum.