Miles Teller í Top Gun 2

Miles Teller mun fara með hlutverk Bradley Bradshaw í Top …
Miles Teller mun fara með hlutverk Bradley Bradshaw í Top Gun 2. mbl.is/AFP

Leikarinn Miles Teller, sem hefur meðal annars leikið í Divergent-myndunum og Fantasic Four, mun leika í Top Gun 2. Teller mun fara með hlutverk sonar Goose, Bradley Bradshaw. Goose var aðstoðarflugmaður Maverick í fyrstu myndinni. 

Fyrsta Top Gun-myndin kom út árið 1986 og fjallar um flugmanninn Maverick. Top Gun 2 hefur verið á teikniborðinu lengi en tökur á myndinni hófust í byrjun júní og er áætlað að hún komi út á næsta ári. 

Ekki er búið að gefa út hverjir munu leika í myndinni fyrir utan Tom Cruise í hlutverki Maverick, Val Kilmer í hlutverki Iceman og nú Teller í hlutverki Bradley Bradshaw. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir hlaupið á þig í ákefðinni í að ganga í augun á fyrirmennum. Forðastu að setja þig í slíka aðstöðu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Carla Kovach
3
Steindór Ívarsson
4
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gætir hlaupið á þig í ákefðinni í að ganga í augun á fyrirmennum. Forðastu að setja þig í slíka aðstöðu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Carla Kovach
3
Steindór Ívarsson
4
Ragnar Jónasson