Silli Geirdal, bassaleikari hljómsveitarinnar Dimmu, á von á barni með konu sinni Ólöfu Erlu Einarsdóttur. Parið greindi frá þessu á Facebook í dag en von er á barninu í nóvember.
„Lífið er ævintýri! Lítill laumufarþegi ætlar að koma í heiminn í nóvember,“ skrifaði Ólöf Erla á Facebook og birti meðal annars sónarmynd með færslunni.