UFC-bardagakappinn Conor McGregor og kærasta hans Dee Devlin eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau soninn Conor Jack McGregor Jr. sem varð eins árs 5. maí síðastliðinn. Devlin tilkynnti um óléttuna þegar hún óskaði kærasta sínum til hamingju með daginn á Instagram. McGregor varð þrítugur á laugardeginum en hann fagnaði áfanganum á úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta í Rússlandi. McGregor var þar í boði forseta Rússlands, Vladimir Putin, og birti mynd af sér með forsetanum á Instagram í kjölfarið.
A post shared by Dee Devlin (@deedevlin1) on Jul 14, 2018 at 11:24am PDT
A post shared by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on Jul 15, 2018 at 11:08am PDT