Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur gefið leyfi fyrir 26.900 áhorfendum á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöld, er bandaríska rokksveitin Guns N‘ Roses stígur þar á svið. Fleiri verða tónleikagestir ekki.
Í fréttatilkynningu frá tónleikahöldurum kemur fram að rúmlega 23 þúsund miðar hafi þegar verið seldir og því er enn hægt að verða sér úti um miða á tónleikana.
Ákvörðun um að takmarka áhorfendafjölda við 26.900 var tekin í samráði við sýslumannsembættið, starfsfólk Laugardalsvallar og erlenda sérfræðinga í tónleikauppsetningu sem starfa fyrir tónleikaferðalag Guns N‘ Roses.
„Skipuleggjendur hafa frá upphafi lagt mikla áherslu á að virða þolmörk leikvangsins og einnig viljað ganga úr skugga um að fjöldi áhorfenda yrði hæfilegur til að öryggi væri ávallt í fyrirrúmi,“ segir í tilkynningu tónleikahaldara.
Tónleikasvæðið verður opnað snemma á þriðjudag, eða klukkan 16:30. Íslenska sveitin Brain Police og bandaríska sveitin Tyler Bryand & The Shakedown hita upp, en aðalnúmer kvöldsins, Guns N‘ Roses, mætir svo á sviðið um kl. 20 og spilar fram eftir kvöldi.