Bubbi Morthens spilar ekki með Dimmu í Hljómskálagarðinum í kvöld líkt og dagskrá menningarnætur gerði ráð fyrir. Bubbi greindi frá því á Facebook-síðu sinni fyrr í dag að hann hafi verið lagður inn á Landspítala vegna kvilla í nefi.
„Vinir mínir í Dimmu munu hins vegar koma fram í kvöld á tilsettum tíma með kennslustund í rokki. Óska öllum góðrar skemmtunar á menningarnótt í Reykjavík. Ég mun koma inn af krafti með Dimmu í haust þar sem við erum með tónleika á nokkrum völdum stöðum á landinu,“ skrifar Bubbi.