Bandaríski leikarinn Burt Reynolds er látinn, 82 ára gamall. Hann lék í fjölda vinsælla kvikmynda á áttunda áratugnum, þar á meðal Smokey and the Bandit og Deliverance.
Reynolds hlaut tilnefningu til Óskarsverðlaunanna fyrir hlutverk sitt sem klámmyndaleikstjórinn Jack Horner í kvikmyndinni Boogie Nights frá árinu 1997 sem Paul Thomas Anderson leikstýrði.
Leikarinn lést á Jupiter-sjúkrahúsinu í Flórída, að sögn umboðsmanns hans Eriks Kritzers.
Reynolds hlaut góða dóma fyrir kvikmyndina The Last Movie Star sem kom út í fyrra.
Leikarinn átti farsælan feril en Hollwyood Reporter greinir frá þeim hlutverkum sem hann hafnaði. Þar á meðal eru hlutverk Hans Solos í Star Wars sem Harrison Ford hreppti í staðinn og hlutverk Johns McClanes í Die Hard, sem Bruce Willis túlkaði á eftirminnilegan hátt.
Breaking: Burt Reynolds, movie star who played it for grins, dies at 82 https://t.co/bHN823BXkn pic.twitter.com/YVZNlhVXoz
— Hollywood Reporter (@THR) September 6, 2018
Burt Reynolds: 9 of his most memorable roles https://t.co/A23a3O9OdL pic.twitter.com/zMbu3YsP6U
— Hollywood Reporter (@THR) September 6, 2018
Burt Reynolds dies, aged 82 - he starred in a string of hits in the 1970s, including Smokey and the Bandit & Deliverance https://t.co/U5zINJpMH4 pic.twitter.com/twK6iRToD1
— BBC Breaking News (@BBCBreaking) September 6, 2018