Einkennishattur Indiana Jones seldist á tæplega 400 þúsund pund á uppboði á fágætum leikmunum úr frægum kvikmyndum síðustu 40 ára í London á dögunum. Jakkinn sem Han Solo klæddist í Star Wars-myndinni The Empire Strikes Back seldist hins vegar ekki, en lágmarksboð í hann var um hálf milljón punda. Vonast hafði verið til að jakkinn færi á að minnsta kosti eina milljón punda. AFP-fréttastofan greinir frá.
Uppboðshaldarar segjast þó hafa fengið nokkur tilboð í jakkann eftir uppboðið og gera ráð fyrir að hann seljist hæstbjóðanda á næstu dögum.
Yfir 600 búningar og leikmunir voru til sölu á uppboðinu sem hefur farið fram á hverju ári síðan 2014. Markmiðið var að safna 3,5 milljónum dollara. Ekki er þó víst að það náist nema jakkinn fágæti seljist.