Mikið hefur fjallað um vináttu hinnar 14 ára gömlu Stranger Things-leikkonu Millie Bobby Brown og Drake en tónlistarmaðurinn er 31 árs. Brown greindi frá því að hann gæfi henni meðal annars ráð varðandi stráka.
„Ég sakna þín svo mikið,“ skrifaði Drake til Brown um daginn. „Ég sakna þín meira,“ sagðist leikkonan hafa svarað.
Einhverjir hafa sett spurningarmerki við aldursmuninn í þessu vinasambandi og svaraði Brown þeim á Instagram í gær. „Af hverju þurfið þið að gera yndislega vináttu að fyrirsögn hjá ykkur?“ skrifaði leikkonan.
Sagðist hún vera heppin að það væri fólk í bransanum sem vildi hjálpa henni með feril hennar og og leiðbeina henni. „Ég er mjög heppin að hafa frábært fólk í mínu líf. Þið fáið ekki að velja það fyrir mig.“