Leikkonan Tiffani Thiessen rétt missti af því að leika Rachel Green í sjónvarpsþáttunum Vinum. Page Six greinir frá því að hún hafi upplýst um þetta þegar hún var að kynna nýja matreiðslubók sem hún var að gefa út.
„Ég var aðeins of ung miðað við restina af þeim,“ sagði Thiessen en hún var tvítug þegar fyrsti þátturinn fór í loftið árið 1994 en Aniston var 25 ára. Thiessen fékk hins vegar hlutverk Valerie Malone í Beverly Hills 90210.
Spurning hvernig Vinir hefðu verið án Jennifer Aniston.