Hertogahjónin af Sussex eru að flytja en ekki langt þar sem þau munu flytja úr litlu húsi á lóð Kensington-hallar í íbúð í höllinni. Það verður nóg pláss fyrri þau Harry og Meghan í nýju íbúðinni en það er 21 herbergi í íbúðinni sem kölluð er íbúð 1.
Samkvæmt Daily Mail var verið að taka íbúðina í gegn og kostaði það 1,4 milljónir punda eða rúmar 200 milljónir íslenskra króna. Var verið að gera við bæði þakið og skipta um glugga.
Harry og Meghan verða í góðum félagsskap í höllinni þrátt fyrir að vera bara tvö með tvo hunda í svona stórri íbúð en Vilhjálmur og Katrín búa í íbúðinni við hliðina á, íbúð 1A. Hægt er að opna á milli svo bræðurnir þurfa ekki að fara út til þess að heimsækja hvor annan.