Bandaríska gamanleikkonan Amy Schumer greindi frá því í gær að hún ætti von á barni. Tilkynninguna setti hún inn á Instagram-síðu vinkonu.
Schumer ýjaði fyrst að þunguninni með því að birta mynd af sér og eiginmanninum, Chris Fischer, sem hafði verið komið fyrir ofan á mynd af Harry prins og eiginkonu hans, Meghan. Aðdáendur hennar voru síðan tengdir inn á síðu blaðakonunnar Jessica Yellin, sem birti síðan færslu varðandi komandi kosningar í Bandaríkjunum. Lokaorðin eru: I'm pregnant - Amy Schumer.