Stórstjörnur úti að borða í Reykjavík

Ashton Kutcher og Mila Kunis fóru út að borða í …
Ashton Kutcher og Mila Kunis fóru út að borða í Reykjavík. AFP

Ashton Kutcher og Mila Kunis eru komin í hóp heimsþekktra Íslandsvina en leikarahjónin sáust á veitingastaðnum Matarkjallaranum í vikunni. Hjónin hafa farið leynt með Íslandsferðina enda passa þau að halda einkalífinu fyrir sig og eru til að mynda ekki virk á samfélagsmiðlum. 

Að sögn sjónarvotts voru hjónin bara tvö og fór lítið fyrir þeim. Fór þó ekki á milli mála að þarna voru þau Kutcher og Kunis á ferð. Ekki fylgir sögunni hvað hjónin pöntuðu sér en fiskurinn er vafalaust góður á veitingastaðnum. 

Þegar haft var samband við forsvarsmenn Matarkjallarans fengust þau svör að staðurinn gæfi ekki upp gestalista sinn og tjáði sig ekki um gestina. 

Ashton Kutcher og Mila Kunis.
Ashton Kutcher og Mila Kunis. PAUL BUCK
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup