Í tilefni af 20 ára afmæli tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves fengu skipuleggjendur hátíðarinnar Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra til að setja saman sérstakan lagalista sem bæði inniheldur hennar uppáhaldslög sem og lög flytjenda sem hafa komið fram á hátíðinni í gegnum árin.
Meðal listamanna sem má finna á lagalistanum eru nokkrir af uppáhaldstónlistarmönnum Katrínar, þau Kate Bush, Peter Gabriel og Primal Scream. Þá eru þar söngkonurnar Robyn, Björk og Sigrid sem allar hafa komið fram á Airwaves sem og yngri og upprennandi íslenskir tónlistarmenn eins og Auður, Young Karin, GDRN og Milkywhale.
Fyrir rúmlega tveimur áratugum kom Katrín að íslensku tónlistarsenunni með því að leika í myndbandi hljómsveitarinnar Bang Gang, sem þá var að gefa út sína fyrstu smáskífu með laginu Listen Baby. Það lag ratar hins vegar ekki inn á lista Katrínar, en nokkur íslensk lög sem eru á milli 10 og 20 ára gömul eru þar í staðinn, eins og I'm 9 Today með Múm, Nasty Boy með Trabant og Síðasta ástin fyrir pólskiptin með Maus.
Meðal hljómsveita sem eru á lista Katrínar er Hjaltalín sem hefur marg oft komið fram á Airwaves.
Árni Sæberg
Hátíðin fer fram dagana 7.-11. nóvember.
Lagalistann í heild má sjá hér að neðan, en hann má einnig finna á Spotify.
- This Woman's Work, Kate Bush
- High Five, Sigrid
- Barso Re, A.R. Rahman, Shreya Ghoshal
- In Your Eyes, Peter Gabriel
- In My View, Young Fathers
- Back for Good, Take That
- Play Dead, Björk
- Lífið er lag, Model
- Some Velvet Morning, Primal Scream
- Space Cowboy, Jamiroquai, David Morales
- Stronger, Sugababes
- Computer Love, Kraftwerk
- The Greatest, Sia and Kendrick Lamar
- Bring It On, Nick Cave & The Bad Seeds
- This Is Not America, David Bowie
- Zero, Yeah Yeah Yeahs
- The Words That Maketh Murder, PJ Harvey
- Þú Komst Við Hjartað í Mér, Hjaltalín
- I Need My Gil, The National
- Try Sleeping with a Broken Heart, Alicia Keys
- Nasty Boy, Trabant
- Add This Song (12" Edit), Gus Gus
- Síðasta ástin fyrir pólskiptin, Maus
- What Else is There?, Röyksopp
- Diamonds, Rihanna
- I'm 9 Today, múm
- L'erreur est humaine, Zebda
- Rhubarb Girl, Miklywhale
- Don't You Worry Child, Swedish House Mafia
- Eldalagið, Todmobile
- Pass This On, The Knife
- Unfinished Sympathy, Massive Attack
- Honey, Robyn
- Er of Seint Að Fá Sér Kaffi Núna, Prins Póló
- Peakin', Young Karin, Logi Pedro
- Hvað ef, Auður, GDRN