„Heard gerði sér upp áverkana“

Johnny Depp og Amber Heard áttu stutt og stormasamt hjónaband …
Johnny Depp og Amber Heard áttu stutt og stormasamt hjónaband saman, sem breskir dómstólar eru að skoða þessa dagana vegna máls sem Depp er að reka fyrir breskum dómstólum. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Samkvæmt The Hollywood Gossip þá segir leikarinn Johnny Depp að fyrrverandi eiginkona hans, Amber Heard, hafi skaðað sig sjálf til að sverta mannorð hans út á við.

Lítið hefur verið fjallað efnislega um ágreininginn sem olli skilnaði þeirra, enda skrifuðu þau undir sáttmála um að tala ekki opinberlega um málið þegar þau skildu. 

En þar sem Depp hefur nýverið farið í mál við breskan fjölmiðil sem hélt því fram að leikarinn hafi ástundað ofbeldi í sambandinu, eru breskir dómstólar að fara yfir hvað gerðist í þessu stutta og stormasama hjónabandi.

Í greininni er vitnað í gögn frá Radar þar sem segir að Depp haldi því fram að saga Heard sé uppspuni. Hann segir lífverðina sína tvo vitni að atvikinu sem átti sér stað á heimili þeirra.

Atvikið átti sér stað heima hjá Depp og Heard. Hann hafði flutt út og var að sækja eigur sínar. 

Hún heldur því fram að hann hafi hent síma í andlit hennar og togað í hárið. Hann hafi síðan brotið hluti á heimilinu með m.a. kampavínsflösku.

Hann heldur því hins vegar fram að þau hafi staðið langt frá hvort öðru þegar Heard hafi öskrað á hjálp. Lífverðirnir komu strax inn í eldhúsið þar sem þau stóðu. Þá hafi hún beðið þá um að hringja í Neyðarlínu 911.

Annar lífvarðanna heitir Sean Bett og er fyrrum rannsóknarlögreglumaður hjá Lögreglustjóra Los Angeles borgar. Depp útskýrir í gögnunum að hann hafi tekið lífverðina með sér af því hann hafi óttast að hún myndi reyna að koma á hann sök svipaðri þeirri sem hún gerði. 

Atvikið átti sér stað innan við viku frá andláti móður Depp. Í gögnum lögreglu sem kom á svæðið, kemur fram að allt hafi verið með kyrrum kjörum þegar þeim komu til hennar. Hún hafi ekki verið með áverka og þeir sáu ekkert brotið á heimilinu.  Hún hafi neitað því að eitthvað hafi gerst. En síðar haldið því fram á samfélagsmiðlum, að Depp hafi veitt henni áverka í andliti og rifið í hár hennar. 

Fjölmiðlar eiga erfitt með að átta sig á hvað raunverulega gerðist, en frásögn The Hollywood Gossip endar á þá leið að eflaust hafi það verið báðum fyrir bestu að sambandið sé á enda. 

Ef marka má samfélagsmiðla, þá virðist hún á mun betri stað en áður. Sitt sýnist svo hverjum um ástand leikarans þekkta.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Líttu í spegil og segðu sjálfum þér að þú sért frábær.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Ragnar Jónasson
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach