Með lífstíðararmbönd á Airwaves

Allt frá því að Airwaves-hátíðin var haldin í fyrsta skipti árið 1999 hafa þeir David Fricke sem er ritstjóri hjá Rolling Stone og Leigh Lust sem hefur starfað í tónlistabransanum í þrjá áratugi verið fastagestir. Nú eru þeir komnir með lífstíðararmbönd á hátíðina og voru heiðraðir við setningu hennar.

Í hádeginu í dag, föstudag, munu þeir taka þátt í ráðstefnu á vegum Útón sem haldin verður á Centerhotel Plaza við Ingólfstorg. Þar munu bæði innlendir og erlendir tónlistarmenn og fólk sem starfar í greininni ræða um m.a. textagerð, kynjaskiptingu og blockchain. Fricke verður með erindi um öra þróun í fjölmiðlun og tónlist.

Ég ræddi við þá félaga um hátíðina í ár og tónlistarflóruna. Fricke er ekki svo hrifinn af því hversu rappið og hip-hopið er fyrirferðarmikið í tónlistarsenunni en þeir eru sammála um að það sé kostur að hátíðin sé minni í ár en oft áður.  

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Torill Thorup