Önnur þáttaröðin af Ófærð verður frumsýnd annan í jólum en fyrir þá sem geta ekki beðið þá birtist ný stikla úr þáttunum í dag á Youtube. Þættirnir hafa verið seldir til annarra landa en verða þó ekki frumsýndir þar fyrr en eftir áramót.
Áætla má að nokkrir tugir milljóna hafi horft á fyrstu þáttaröðina af Ófærð til enda. Hún var til dæmis vinsælasta erlenda þáttaröðin sem sýnd var í Frakklandi árið 2016 en 5,2 milljónir horfðu á fyrsta þáttinn. Einnig fékk Ófærð gott áhorf í Bretlandi, Þýskalandi, Japan og Ástralíu.
Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson fara sem fyrr með aðalhlutverkin í Ófærð 2.