Leikarinn Leonardo DiCaprio er búinn að vera með kærustu sinni, fyrirsætunni og leikkonunni Camilu Morrone, í um eitt ár og spyrja sig nú margir hvort parið ætli að taka næsta skref og trúlofa sig. Parið sást fyrst saman rétt fyrir jól í fyrra en DiCaprio er 44 ára en Morrone aðeins 21 árs.
Samband parsins er sagt vera alvarlegt og fólk í kringum þau talar um að hjónaband gæti verið á næsta leiti að sögn heimildarmanns Us Weekly.
Að vera í sambandi í heilt ár þykir ekki mikið en töluvert afrek fyrir hinn 44 ára gamla leikara sem hingað til hefur ekki verið tilbúinn til þess að ganga í hjónaband og eiga börn og er yfirleitt með konum í kringum tvítugt, sama hversu gamall hann er sjálfur.