Söngkonan Madonna kom óvænt fram á bar í New York um áramótin. Afturendi Madonnu hefur þó vakið meiri athygli en söngur hennar. Á myndböndum sem hafa birst á samfélagsmiðlum þykir rass hennar mun stærri en vanalega.
Erlendir miðlar á borð við E! og Page Six hafa greint frá ummælum fólks á netinu þar sem Madonna er sögð hafa farið í rasslyftingu. Miðað við myndböndin sem fylgja með virðist rass hennar óvenjustór en ekki skal sagt hvort söngkonan hafi fallið í sömu gryfju og Kim Kardashian og látið eiga við afturenda sinn.
Sjálf birti söngkonan myndband frá kvöldinu þar sem hún kom fram ásamt syni sínum og hélt ræðu til heiðurs baráttu hinsegin fólks.
View this post on InstagramA post shared by Vicky DeVille (@vickydeville) on Jan 1, 2019 at 7:25am PST