Kvikmyndin Green Book bar óvænt sigur úr býtum í keppninni um bestu myndina á Óskarsverðlaunaafhendingunni sem fram fór í nótt.
Myndin fjallar um vinsælan svartan píanóleikara sem vingast við hvítan bílstjóra sinn þar sem þeir ferðast saman um ameríska suðrið á sjöunda áratug síðustu aldar, en fyrir fram var kvikmynd mexíkóska leikstjórans Alfonso Cuaron, Roma, talin líklegust til að hreppa verðlaunin.
Enn óvæntari var ef til vill sigur Oliviu Colman, sem valin var besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir leik sinn í myndinni The Favourite. „Þetta er í alvörunni mjög stressandi. Þetta er sprenghlægilegt. Ég er komin með Óskar,“ sagði hún í þakkarræðu sinni.
Verðlaunin voru þau þriðju sem veitt voru fyrir Green Book, en myndin var tilnefnd í fimm flokkum. Mahershala Ali var valinn besti leikari í aukahlutverki fyrir leik sinn í Green Book og einnig þótti handrit myndarinnar það besta frumsamda.
Rami Malek var valinn besti leikari í aðalhlutverki, en hann lék Freddie Mercury forsprakka hljómsveitarinnar Queen í kvikmyndinni Bohemian Rhapsody. Regina King þótti besta leikkonan í aukahlutverki fyrir leik sinn í If Beale Street Could Talk.
Leikstjórinn Spike Lee fékk þá í fyrsta sinn Óskarsverðlaun í keppnisflokki ef svo má að orði komast, en fram til þessa hafði hann aðeins fengið heiðursverðlaun árið 2015 fyrir framlag sitt til kvikmynda. Verðlaunin fékk hann núna fyrir handrit byggt á áður útgefnu efni, fyrir kvikmyndina BlacKkKlansman.
Hlaut hann mikið lófaklapp fyrir, en áður en Samuel L. Jackson veitti honum verðlaunin tilkynnti Jackson sérstaklega að körfuboltaliðið New York Knicks hefði bundið enda á langa tapgöngu sína fyrr um kvöldið, aðdáandanum Spike Lee til mikillar gleði.