Áhrifavaldurinn Jordyn Woods sagði í viðtali við Jödu Pinkett Smith að hún væri ekki hjónadjöfull.
Woods stendur nú í deilum við Kardashian/Jenner fjölskylduna en hún hefur verið ásökuð um að hafa átt í nánu samneyti við Tristan Thompson barnsföður einnar systurinnar Khloé Kardashian. Woods var mikill vinur fjölskyldunnar og var besta vinkona Kylie Jenner, en hún bjó meðal annars í gestahúsi Kylie.
Woods kom fram í þættinum Red Table Talk í vikunni og var þátturinn birtur í gær. Leikkonan Jada Pinkett Smith stjórnar þættinum en þær hafa þekkst frá því Woods var lítil stúlka, en faðir hennar John Woods vann að gerð þáttanna The Fresh Prince of Bel-Air.
Hún tekur fyrir það að hafa sofið hjá Thompson en hún var stödd í eftirpartýi heima hjá honum. Khloé Kardashian brást ekki vel við framkomu Woods og sakar hana um að ljúga. Khloé segir hana vera ástæðuna fyrir því að hún og Thompson séu ekki saman, en þau eiga saman dótturina True.
Why are you lying @jordynwoods ?? If you’re going to try and save yourself by going public, INSTEAD OF CALLING ME PRIVATELY TO APOLOGIZE FIRST, at least be HONEST about your story. BTW, You ARE the reason my family broke up!
— Khloé (@khloekardashian) March 1, 2019