Hin 17 ára Billie Eilish er nú yngsta söngkonan með mest seldu plötuna á Bretlandi. Þar með hefur hún slegið fyrra met söngkonunnar Joss Stone árið 2004, sem gaf þá út plötuna Mind, Body and Soul. Kemur þetta fram á vef BBC.
Nýjasta plata Billie, When We All Fall Asleep, Where Do We Go? hefur slegið rækilega í gegn hérlendis og erlendis. Tvö vinsælustu lögin á Íslandi um þessar mundir, samkvæmt topp 50-lista Spotify, eru tvö lög af plötu Billie. Lagið bad guy trónir á toppi listans en næst kemur lagið wish you were gay.
Hefur platan þegar selst í 48 þúsund eintökum í Bretlandi, en hún kom út fyrir sjö dögum, hinn 29. mars. Platan seldist næstfljótast í Bretlandi en hún fylgir fast á eftir plötu Ariönu Grande, Thank U, Next.
Athygli vekur að Billie getur ekki fagnað áfanganum með áfengan drykk í hendi þar sem hún hefur ekki aldur til að drekka í Bretlandi fyrr en í desember. Þá verður hún 18 ára. Enn lengra er þangað til á heimaslóðum hennar í Bandaríkjunum, þar sem áfengiskaupaaldurinn 21 ár.
Engu að síður segist Billie hafa unnið hörðum höndum að plötunni í samtali við Official Charts Company og þakkar fyrir stuðninginn.
Lagið bad guy er af nýjustu plötu Billie Eillish og mest spilaða lag íslenskra notenda Spotify en einnig mest spilaða lag á Spotify um allan heim um þessar mundir.