Rappkonan Cardi B mætti í efnislitlum fötum á Billboard-tónlistarverðlaunin í Las Vegas á miðvikudag. Fengu brjóst hennar að njóta sín sem er kannski ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að sama dag greindi hún frá því að hún hefði látið laga á sér brjóstin eftir barnsburð.
Cardi B hefur verið að dugleg að greina frá því hvaða áhrif það hafði á líkama hennar að eignast barn og hvernig henni hefur gengið að koma sér í sitt gamla líkamlega form aftur. Hún var því ekki að fela neitt þegar hún var spurð út í það hvernig henni liði með líkama sinn í viðtali við ET.
„Mér líður vel en stundum líður mér ekki þannig, veistu? Húðin er búin að teygjast. Ég er nýbúin að láta laga á mér brjóstin,“ sagði Cardi B til útskýringar.
Sagðist henni líða vel í brjóstunum en grínaðist með það að dóttir hennar hefði eyðilagt á henni líkamann.