Irina Shayk og Bradley Cooper eru hætt saman en mbl.is greindi frá því fyrir helgi. Nú er Shayk mætt til Íslands en hún birti mynd af sér á Instagram í gær.
Auk þess birti hún færslu á Instastory en hana má sjá hér. Hún er augljóslega hugfangin af náttúrunni sem kemur svo sem ekki á óvart því þeir sem búa á Íslandi vita að töfrarnir gerast á sumarnóttunum.
Shayk hefur vegnað vel á fyrirsætuferli sínum og hefur unnið fyrir flest frægustu tískuhús heims. Svo byrjaði hún með Bradley Cooper árið 2015 eftir að hafa átt í ástarsambandi við sjálfan Cristiano Ronaldo en þeirra samband stóð fyrir frá 2010 - 2015.
Eftir að myndin A Star Is Born var frumsýnd í fyrra hafa sögusagnir verið á kreiki að heitt sé á milli Cooper og meðleikkonu hans, Lady Gaga. Hún hætti með unnusta sínum í vetur og á Óskarnum tóku þau lagið saman og fór upptakan eins og eldur um veraldarvefinn. Eldurinn á milli þeirra virtist nefnilega ekki fara framhjá neinum. Cooper og Gaga hafa þvertekið að eitthvað sé á milli þeirra og benda á að þetta sé bara allt saman leikur.