Bandaríska listakonan og tískudrottningin Gloria Vanderbilt er látin, 95 ára að aldri. Samkvæmt syni hennar og fréttamanninum Anderson Cooper lést hún umkringd fjölskyldu sinni á heimili sínu eftir baráttu við krabbamein.
Greint er frá andláti Vanderbilt á vef BBC, en hún var þekkt sem „aumingja litla ríka stelpan“ (e. poor little rich girl), enda barnabarnabarnabarn auðkýfingsins Cornelius Vanderbilt.
Vanderbilt skapaði sér nafn á áttunda og níunda áratugnum þegar hún hóf hönnun sína og framleiðslu á gallabuxum. „Gloria var málari, höfundur og hönnuður en líka frábær móðir, eiginkona og vinkona,“ segir Cooper um móður sína.
„Hún var 95 ára gömul, en spyrjið þá sem stóðu henni næst og þeir myndu segja hana yngstu, svölustu og nútímalegustu konu sem þau þekktu.“