Aron Can var ekki bókaður á Secret Solstice. Will.i.am í Black Eyed Peas var ekki nógu ánægður með þá ráðstöfun þannig að hann gerði sér lítið fyrir og bauð honum upp á svið með sér í gærkvöldi. Og mikil fagnaðarlæti kváðu hafa brotist út þegar Aron birtist, enda einn óneitanlega einn ástsælasti rappari þjóðarinnar.
Aron nýtti vettvanginn til þess að flytja meistarastykkið sitt Fulla vasa. Það er rúmlega tveggja ára gamalt og er með 2,5 milljónir streyma á Spotify, eitt mest spilaða íslenska lagið þar. Það væri ónákvæmt að segja annað en að fólk hafi sturlast þegar byrjunarstefið glumdi við.
https://t.co/Bk4A9F0yY5 bað Aron Can um að koma fram með Black Eyed Peas. Geggjað. pic.twitter.com/5iEeDrvAbv
— Logi Pedro (@logipedro101) 22 June 2019
Eins og mbl.is greindi frá í gær funduðu Aron og will.i.am stíft kvöldið áður til þess að skipuleggja laugardagskvöldið. Þegar fregnir bárust af þeim fundahöldum var hins vegar á huldu um hvað þau snérust en nú hefur komið á daginn um hvað var lagt á ráðin.