Tónlistarkonan Mariah Carey sagði í viðtali við Cosmopolitan að hún geti talið á fingrum annarrar handar hvað hún hefur sofið hjá mörgum karlmönnum.
„Ég hef ekki átt marga [bólfélaga], en þeir hafa verið fjölbreyttir. Ég hef bara verið með fimm manneskjum á ævinni, þannig að ég er frekar mikil tepra samanborið við marga í skemmtanabransanum,“ sagði tónlistarkonan.
Carey, sem er 49 ára, er í sambandi með fyrrverandi dansara sínum, Bryan Tanaka. Hún hefur verið gift tvisvar sinnum. Hún á tvíburana Moroccan og Monroe með fyrrverandi eiginmanni sínum Nick Cannon en þau voru gift á árunum 2008-2016. Hún var einnig gift Tommy Mottola á tíunda áratugnum.
Hún hefur oft sagt að hjónaband hennar og Mottola hafi verið skrítið en hann er 21 ári eldri en hún.