Réttarhöld yfir bandaríska rapparanum A$AP Rocky, sem sakaður er um líkamsárás í Stokkhólmi, hófust í sænsku höfuðborginni í morgun.
Rocky var handtekinn 3. júlí fyrir meinta líkamsárás og hefur setið í fangelsi síðan. Í síðustu viku var staðfest að hann og samferðamenn hans yrðu ákærðir fyrir árásina.
Fram kemur í frétt AFP að rapparinn, sem er þrítugur, hafi komið í dómsal klæddur í grænan stuttermabol og íþróttabuxur.
Áður hefur komið fram að Donald Trump Bandaríkjaforseti er afar ósáttur með að stjórnvöld í Svíþjóð hafi ekki beitt sér fyrir því að rapparinn yrði látinn laus.